í apríl 2003 gengu tveir ungir strákar inn á fund nemendaráðs vopnaðir hugmyndum og vilja til að endurbæta vefsíðu nemendafélagsins. áður hafði nemendafélagsíðan verið á vegum skólans, huga.is og síðast snergurogdanni.com. Félagið skiptist á hugmyndum um hugsanlegt veffang á vefinn og var áætlunin að kaupa inn nffa.is en það veffang hafði verið keypt stuttu áður af öðrum skóla. Eftir þó nokkrar rökræður var ákveðið að festa kaup á veffanginu faviti.is, en fyrirmyndin var fengin úr fundagerðabók félagsins en fyrrverandi embættismen höfðu þegar velt fyrir sér mögulegt lén.
Fyrsta útgáfan af vefnum var opnuð fljótlega í byrjun september 2003. Daníel Sigurður Eðvaldsson og Hlynur Sigurþórsson hrintu verkefninu af stað og sáu um tæknimál, ritstjórn og þróun vefsinns. á vefnum voru birtar myndir, fréttir, atburðatal og spjallborð. Einnig var rekið vefútvarp sem var starfandi nokkra mánuði.
Árið 2006 var blásið nýtt líf í vefinn þegar Atli þór árnason (fyrrverandi formaður NFFá) kom inn í vefstjórnina og hefur hann séð um hönnun á vefnum síðan þá.
í ár fagnar vefsíðan því 5 ára afmæli.
Ármúla 12, 108 Reykjavík
Sími: 568 7048
Netfang: nffa@faviti.is
Kennitala: 590986 1949