90's Ball !!!

15. febrúar 2010

Þá er allt byrjað að rúlla hjá okkur og fyrsti stóri viðburðurinn framundan og er það 90's ball sem haldið verður hátíðlegt Fimmtudaginn 18. Febrúar á skemmtistaðnum Rúbín í Öskjuhlíðinni.. Miðaverð er einungis 1000 krónur á haus ef þú hefur greitt nemendafélagsgjöldin en 1500 krónur á aðra... Fram koma tveir af bestu plötusnúðum landsins þeir DJ Sindri BM og DJ Frigor og munu þeir gera allt vitlaust með 90's músík sem við öll ólumst upp við.. Þar er ekki allt sagt heldur munum við gefa Glowsticks við hurð á ballinu og verður magnað show á meðan ballinu stendur... 

Peruvikan

02. nóvember 2009

Jæja krakkar mínir nú er Peruvikan á næsta leiti!

Peruvikan hefst þann 9. nóvember og lýkur með balli þann 12. nóvember

Það verða viðburðir í skólanum hvern einasta dag í hádegishléum og einnig verður alltaf eitthvað að gerast í skólanum á kvöldinn! Ekki missa af viðburðum á borð við Fífa mótið og Djúpa Pottinn ;)

Nánari upplýsingar um dagskrá í peruvikunni verða auglýstar þegar nær dregur.

Kveðja,

Elín Ágústa Gjaldkeri

Nýnemaráð og Morfís

22. september 2009

Nemendafélagið leitar eftir hressum nýnemum(fædd árið 1993) í svokallað nýnemaráð.. Nýnemaráðið hefur verið þannig síðustu ár að aðeins tveir nýnemar hafa fengið að komast inn í nemendafélagið en samkvæmt nýju lögunum verður breyting þar á.. Nýnemunum bíðst tækifæri um að sækja í hin ýmis ráð sem eru starfandi innan nemendafélagsins.. þannig að við leitum að nýnemum í eftirfarandi ráð: Skemmtinefnd, Íþróttaráð, Markaðsráð og Listanefnd.. Einnig hvetjum við nýnema til að láta okkur vita ef þau vilja taka þátt í videogerðinni stefnt er að því að sýna allavega einn þátt á þessari önn jafnvel tvo og sama á við um næstu önn...

Ég vil líka minna alla á að fyrsta morfísnámskeiðið er á fimmtudaginn næstkomandi 24.09.09 og hvet ég alla sem hafa einhvern áhuga á rökræðum eða bara koma skoðunum sínum á framfæri að kíkja á þetta námskeið. Námskeiðið verður haldið eftir síðasta tíma á fimmtudaginn í stofu M26..

kv. Dagur form..